Project

General

Profile

Fjárhagspælingar » History » Revision 3

Revision 2 (Guðmundur Viktorsson, 2011-12-13 21:48) → Revision 3/6 (Guðmundur Viktorsson, 2011-12-13 21:50)

h1. Fjárhagspælingar 

 * GV: Æskilegt væri að geta sett upp grófa fjárhagsætlun áður en við biðjum um fé frá skólanum. 

 * GV: Tel að það væri lang sniðugast að láta skólann sjá um að halda utanum fjármál félagsins (ef það er í boði). Það var þannig í kafbátaverkefninu og þó að það kosti smá overhead og pappírsvinnu þá sparar það umsýsluvinnu auk þess sem það veitir eitthvað öryggi gegn misnotkun. 
 * GV: Þar sem að kafbátaverkefnið er eldra en klúbburinn og hefur verið að velta hærri upphæð heldur en þetta nýja róbotafélag hefði gott af (á meðan það er í mótun) tel ég að ekki ætti blindandi að sameina fjármuni þessara félaga fyrr en eftir næstu kafbátakeppni. Hinsvegar mætti setja einhvern pening úr kafbátaverkefninu sem "stofnfé" í nýja félagið - auk þess sem nýja félagið myndi væntanlega njóta góðs af þeirri umfjöllun sem kafbátaverkefnið hefði fengið síðastliðið ár. 
 ** GV: Væntanlega hefðu stærri verkefni innan félagsins sína eigina "reikninga". Þær fjáraflanir sem viðkomandi verkefni stendur fyrir í sínu eigin nafni myndu þá renna að stærstu hluta til þess verkefnis. (og auðvitað myndi félagið tryggja það að ekki kæmi til samkeppni á milli verkefna um styrki frá t.d. fyrirtækjum, heldur t.d. sameina styrkbeiðnirnar í eina "öflugri"?) 

 *Tekjuöflunarleiðir:* 
 * Meðlimagjald (GV: 2000 kr. á önn) 
 * Reglulegur styrkur frá HR 
 ** Bæði að styðja við nám innan skólans og vekja hugsanlega áhuga nemanda á efninu auk þess sem klúbburinn gæti verið góð kynning út á við. 
 ** Megum ekki gleyma því að skólinn myndi janframt vera að styrkja okkur um aðstöðu, búnað, nethýsingu og aðra þjónustu 
 * Styrkur frá fyrirtækjum 
 ** Gegn auglýsingum á heimasíðum, tækjum eða þess háttar 
 ** Gegn fyrirlestri/kynningu fyrir starfsmenn þess fyrirtækis.