Actions
Fjárhagspælingar¶
- GV: Æskilegt væri að geta sett upp grófa fjárhagsætlun áður en við biðjum um fé frá skólanum.
- GV: Tel að það væri lang sniðugast að láta skólann sjá um að halda utanum fjármál félagsins (ef það er í boði). Það var þannig í kafbátaverkefninu og þó að það kosti smá overhead og pappírsvinnu þá sparar það almennt umsýsluvinnu auk þess sem það veitir eitthvað öryggi gegn misnotkun.
- GV: Þar sem að kafbátaverkefnið er eldra en klúbburinn og hefur verið að velta hærri upphæð heldur en þetta nýja róbotafélag hefði gott af (á meðan það er í mótun) tel ég að ekki ætti blindandi að sameina fjármuni þessara félaga fyrr en eftir næstu kafbátakeppni. Hinsvegar mætti setja einhvern pening úr kafbátaverkefninu sem "stofnfé" í nýja félagið - auk þess sem nýja félagið myndi væntanlega njóta góðs af þeirri umfjöllun sem kafbátaverkefnið hefði fengið síðastliðið ár.
- GV: Væntanlega hefðu stærri verkefni innan félagsins sína eigina "reikninga". Þær fjáraflanir sem viðkomandi verkefni stendur fyrir í sínu eigin nafni myndu þá renna að stærstu hluta til þess verkefnis. (og auðvitað myndi félagið tryggja það að ekki kæmi til samkeppni á milli verkefna um styrki frá t.d. fyrirtækjum, heldur t.d. sameina styrkbeiðnirnar í eina "öflugri"?)
- Meðlimagjald (GV: 2000 kr. á önn??)
- Reglulegur styrkur frá HR
- Bæði að styðja við nám innan skólans og vekja hugsanlega áhuga nemanda á efninu auk þess sem klúbburinn gæti verið góð kynning út á við.
- Megum ekki gleyma því að skólinn myndi janframt vera að styrkja okkur um aðstöðu, búnað, nethýsingu og aðra þjónustu
- Styrkur frá fyrirtækjum
- Gegn auglýsingum á heimasíðum, tækjum eða þess háttar
- Gegn fyrirlestri/kynningu fyrir starfsmenn þess fyrirtækis.
- Halda kynningar/fyrirlestra/ráðstefnur og "selja inn"?
Updated by Guðmundur Viktorsson about 13 years ago · 6 revisions