Project

General

Profile

Actions

Umræðupunktar fyrir deildarforsetafund

  • Megum við setja "auglýsingaróbóta" í jörð/sól?
    • kannski of seint að spyrja á fundinum og betra að spyrja bara fasteignaumsjónina
  • Hvaða kúrsa eigum/megum við fara í til að kynna kynningarfundinn (sem haldinn verður 20. janúar)
    • Viljum fara í kúrsa þar sem við náum til sem flestra (allavega nýnemar, eldri nemar mættu vera með meiri fókus á AI?).
      • GV: Sammála. T.d. í verkfræðinni myndum við fara í STÆII þar sem allir nýnemar eru, en Efnisfræði og Merkjafræði fyrir 2. og 3. ár í hátækni- og heilbrigðisverkfræði
      • GV: Ekki gleyma þeim sem voru að byrja núna um áramótin? (STÆI í verkfræðinni)
      • GV: Ekki gleyma véla- og rafmagnstæknifræðinni.
    • 5-10 mínútna kynning? (er það ekki nóg? varla of langt?) GV: Held að 5 mín. sé passlegt.
  • GHB: Kynna þá dagskrárliði sem við sjáum fyrir okkur og fyrirkomulag.
  • Fjármál
    • Kynning á því hvað við höfum verið að tala um (sjá um fjármál sjálf vs. að fá skólann til að gera það)
      • GHB: Þegar ég og Gummi bókuðum stofu fyrir kynninguna hjá Sigrúnu Þ. minntist ég aðeins á fjármálin við hana. Hún var alveg til í að þetta yrði rekið í gegnum hana til að byrja með og svo mundum við sjá til ef þetta stækkar mikið.
      • GV: Mér fannst Sigrún Þ. hljóma eins og hún gerði ráð fyrir að klúbburinn væri það sama og kafbátaverkefnið - og fengið þ.a.l. allan þennan pening sem kafbáturinn ætti. Held að enginn okkar sé á þeirri skoðun?
    • Möguleiki á framlögum frá deildunum?
      • GHB: Fyrst um sinn þurfum við bara:
        • Aðgang að aðstöðu
          • Rafeindalabið
          • Vélaverkstæðið
        • Aðgang að efni og tækjum í samráði við umsjónarmenn
  • Verkefni í samstarfi við skólann
    • Sjálfstæð verkefni til eininga
  • Jákvæð kynning fyrir skólann útávið
    • Gætum verið með bás á ýmsum hátíðum innan skólans.
  • Ýtum vonandi undir metnað og áhuga nemenda á námi

Komment

  • SFS: það þarf að setja þetta svolítið betur upp áður en við sendum þetta út.
  • JG:
    • Það eru örugglega stoðdeildirnar sem þarf að sannfæra um auglýsingaróbotana. Ef það koma upp vandamál með þettamyndu Guðrún og Björn örugglega hjálpa okkur með þau.
    • Komið í kúrsinn Merkjafræði til mín. Hann er á mánudögum og fimmtudögum frá 10:20 til 13:00. Það væri fínt ef þið kæmuð kl. 12:00. Látið mig bara vita.
    • Mér líst lang best á að fjármálin séu rekin með aðstoð Sigrúnu Þorgeirsdóttur. GV: Sammála.

Updated by Guðmundur Viktorsson about 13 years ago · 12 revisions